|
Töfrakonur Magic Women |
|
Við erum töfrakonurFyrirtækið "Töfrakonur/Wagic Women" er nýtt fyrirtæki í Húnavatnshreppi. Það er stofnað til framleiðslu og sölu á ýmsum vörum sem tengdar eru ferðaþjónustu og menningu. Hugmyndin er að framleiða margvíslegar vörur s.s. gjafavörur ýmiss konar sem þá eru að stærstum hluta hugsaðar fyrir ferðamenn, einnig korta, kilju og bókaútgáfu, framleiðslu á skartgripum, fatnaði og vöru unnum úr jurtum. Ýmsar hugmyndir hafa komið upp og framtíðarsýnin er sú að með tíð og tíma eignist fyritækið eigin verslun og muni hafi fleiri í vinnu en eigendur. Eigendur fyrirtækissins eru þrír og er eignarhlutfallið jafnt. Það eru Birgitta Hrönn Halldórsdóttir, Jóhanna Helga Halldórsdóttir og Þuríður Guðmundsdóttir. Heimilisfesta fyrirtækisins er að Syðri-Löngumýri í Húnavatnshreppi og skoðunarmaður reikninga er Ingibjörg Kristinsdóttir á Skagaströnd. Þeir sem vilja panta vörur, spár, námskeið, einkatíma eða fræðast hjá okkur gefa haft samband við Birgittu í síma: 4527119 og á langamyri@emax.is Jóhönnu í síma 4527140 og á brandsstadir@emax.is og Þuríði í síma 6991328 og á tofrakona@gmail.com
|
Vafraðu um |